Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bíl ekið á fimm ára stúlku á Akureyri

Ekið var á fimm ára stúlku á Akureyri síðdegis í dag. Lögreglu barst tilkynning um ákeyrsluna klukkan fjögur í dag en betur fór en á horfðist.Jepplingur ók norður Bugðusíðu á Akureyri og beygði til hægri, austur á Teigarsíðu. Þar var stúlkan á reiðhjóli. Hún var nánast komin yfir veginn þegar hægra framhorn bílsins rakst í hjólið og það féll í götuna.Stúlkan var flutt á spítala til skoðunar en ekki er talið að meiðsl hennar séu alvarleg.Myndin tengist fréttinni ekki beint.RÚV / Ragnar Visage

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera·Vefþjónusta