Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hlýjast á Norðausturlandi — vætusamt og hvasst um helgina

Dálítil væta fylgir suðlægri vindátt í dag og bætir í rigningu síðdegis, fyrst suðvestantil og einnig norðaustanlands í kvöld. Hiti verður 11 til 20 stig, hlýjast á Norðausturlandi.Vindáttin þýðir að gas frá eldgosinu gæti borist yfir Voga og inn á Faxaflóa í dag. Gasmengun í byggð mældist ekki mikil í nótt en gosmóða mældist víða á Suðurlandi í gærkvöld.Á morgun gera spár ráð fyrir suðvestanátt, 5 til 10 metrum á sekúndu. Skúrir í flestum landshlutum en léttir til á austanverðu landinu. Hiti breytist lítið. VÆTUSAMT OG HVASST UM HELGINA Á fimmtudag verður vestlæg átt, 5 til 10 metrar á sekúndu, og áfram skúrir en dregur hægt úr vætu eftir hádegi. Hiti 12 til 17 stig. Á föstudag er útlit fyrir vaxandi suðlæga átt og rigningu af og til eftir hádegi. Hiti 11 til 19 stig, hlýjast norðausta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera·Vefþjónusta