Bríet Ísis Elfar tónlistarkona hóf ferilinn sautján ára gömul þegar hún sendi frá sér sinn fyrsta smell sem nefnist In too deep árið 2018. Tveimur árum síðar kom platan Kveðja, Bríet út sem gerði allt vitlaust og frægðarsól hennar reis í hæstu hæðir hér á landi. Bríet fæddist í Reykjavík; foreldrar hennar eru Benedikt Elfar og Ásrún Laila Awad, en móðurafi hennar Ómar Ahmed Hafez Awad er af egypskum uppruna og flutti til Íslands árið 1965. Bríet var gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér á Rás 1 þar sem hún leit yfir farinn veg. BYRJAÐI AÐ SYNGJA Í SVETT-TJALDINU Að verða tónlistarkona var ekki beint ákvörðun hjá Bríeti heldur þróaðist lífið þannig. Hún er alin upp við mikinn söng og á minningar af sér fjögurra ára að syngja og spila tónlist með föður sínum. Síðan voru sungnar mönt