Kex, sem einnig er með starfsemi á Skúlagötu í Reykjavík, hefur nú verið opnað í Hafnarstræti en hér ekki um að ræða götuna í miðbænum heldur gamla kaupfélagshúsið á Þingeyri. Þar var Kex-hótel opnað fyrstu helgina í júní, en nánar var fjallað um hótelið í Morgunblaðinu 5. maí.