Einn versti mislingafaraldur síðan árið 1992 herjar á Bandaríkin en um 1.297 tilfelli hafa komið þar upp það sem af er ári. Flest tilfelli hafa komið upp í Texas-ríki og búist er við að þeim fari fjölgandi í sumar vegna aukinna ferðalaga á milli ríkja og til útlanda.