Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveggja ára fangelsi fyrir að smygla hátt í þremur kílóum af kókaíni

Karlmaður var í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að reyna að smygla hátt í þremur kílóum af kókaíni til landsins í apríl. Fíkniefnin voru falin í ferðatösku sem hann afhenti öðrum manni við komuna til landsins.Ljóst þótti að maðurinn hefði ekki skipulagt smyglið heldur tekið að sér gegn greiðslu að koma efnunum til landsins.Hann var upphaflega ákærður fyrir að smygla kókaíninu í félagi við annan mann. Við meðferð málsins var því breytt og málinu skipt upp í tvo hluta. Sá sem tók við fíkniefnunum hérlendis er ákærður í öðru dómsmáli fyrir sama smygl.Við þingfestingu játaði maðurinn þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Með játningunni, sem samrýmdist framburði mannsins hjá lögreglu, ásamt öðrum rannsóknargögnum í málinu var sannað að hann hefði gerst sekur um háttsemina.Krafist var

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera·Vefþjónusta