Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Baugur Bjólfs tekur á sig mynd hátt ofan Seyðisfjarðar

Nýr útsýnispallur ofan Seyðafjarðar er farinn að taka á sig mynd og skagar fram af fjallinu. Baugur Bjólfs verður nýr ferðamannastaður á Austurlandi og eflaust vinsæll hjá farþegum skemmtiferðaskipa.Fjallið Bjólfur gnæfir yfir Seyðisfirði norðanverðum og á fjallsbrúninni stingur nývirkið fram nefinu. Útsýnispallurinn sést greinilega neðan úr bæ og ber við himinn. Þegar upp er komið sést hvað Múlaþing er að gera fyrir um 160 milljóna króna styrk úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða. MVA byggði undirstöðurnar í fyrrasumar og undirbýr nú að steypa sjálfan Bauginn.„Þetta er hringur eða svokallaður Baugur Bjólfs sem er 32 metrar í þvermál. Þetta er spennt í tveimur hálfmánum og undir hvorum eru aðeins þrjár undirstöður. Svo á eftir að leggja í þetta rör og kapla því mannvirkið er á fáum undirstöð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta