Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hamas-samtökin samþykkja að sleppa 10 gíslum

Hamas-samtökin hafa samþykkt að sleppa tíu gíslum úr haldi. Ákvörðunin kemur í kjölfar vopnahlésviðræðna samtakanna við Ísrael í Katar. Í yfirlýsingu samtakanna segir að þau ætli að sleppa gíslunum til að sýna fram á nauðsynlegan sveigjanleika í samningaviðræðunum.Hamas tóku 251 í gíslingu eftir að samtökin réðust inn í Ísrael 7. október 2023. Af þeim eru 49 enn í haldi og Ísraelsher telur 27 þeirra látna.Í yfirlýsingu samtakanna segir að enn sé verið að ræða mikilvægustu málin, sem þyki mesta hindrunin í samningaviðræðunum. Það eru aðgengi að hjálpargögnum, að Ísraelsher yfirgefi Gaza og að varanlegt vopnahlé verði tryggt. Þrátt fyrir erfiðleika í samningaviðræðum vegna „þrjósku Ísraels“ haldi samtökin áfram að vinna að vopnahléi.Óbeinar viðræður samtakanna og Ísraels hafa staðið yfir í f

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera