Íslenskur slökkviliðsmaður gengur nú 465 kílómetra frá Goðafossi að Gróttuvita til að vekja athygli á andlegri heilsu og sjálfsvígsforvörnum. Hann er kominn á þriðja dag af tólf, hefur lokið 87 kílómetrum en áttar sig nú á því að hann klári þetta ekki einn síns liðs.