Sergei Tikanovsky hafði verið haldið í fangelsi í Belarús í fimm ár þegar honum var óvænt sleppt 21. júní ásamt 13 öðrum pólitískum föngum. Hann hafði hlotið tæplega 20 ára dóm eftir að hann tilkynnti um framboð sitt gegn Alexander Lukasjenko, forseta Belarús, sumarið 2020.Tikanovsky var strax fluttur til Ríga í Litáen eftir að stjórnvöld létu hann lausan, þangað sem Svetlana Tikanovskaya eiginkona hans og börnin þeirra tvö flúðu 2020.Hann hefur veitt nokkur viðtöl síðan hann hlaut frelsi og sagði í viðtali við þýska ríkisfjölmiðilinn ARD að það væri erfitt að lýsa erfiðustu stundunum í fangelsinu. „Það yrði erfitt fyrir aðra að skilja þetta, Evrópubúar skilja þetta líklega ekki, þegar maður er bara á götunni að safna undirskriftum fyrir forsetaframboð og er tekinn og settur á bak við lás