„Við þurfum helst að hafa bestu hestana á Íslandi í mynd svo hestamenn trúi þessu“
Sjónvarpsþáttaröðin Bless, bless Blesi, sem framleidd er af íslenska framleiðslufyrirtækinu ACT4, er fyrsta leikna þáttaröð RÚV í samstarfinu New8. New8 er samstarf allra norrænu sjónvarpsstöðvanna: DR, SVT, NRK, YLE, RÚV auk ZDF í Þýskalandi, NPO í Hollandi og VRT í Belgíu. Þáttaröðin er hugarfóstur handritateymisins Birkis Blæs Ingólfssonar og Jónasar Margeirs Ingólfssonar sem saman skrifuðu Ráðherrann og Ísalög.Ný sería er væntanleg á skjáinn frá ACT4 sem nefnist Reykjavík Fusion með Ólafi Darra og Heru Hilmarsdóttur. Ólafur Darri leikur matreiðslumeistara sem kemur úr fangelsi og ákveður að stofna veitingastað í von um að vinna hug og hjarta fyrrverandi unnustu. Til að fjármagna reksturinn þvættar hann peninga á staðnum. Hera Hilmar leikur rekstrarstjóra v