Gréta Sigríður Einarsdóttir skrifar:Miðaldra konur fá ekki alveg sama pláss í skáldskap og miðaldra karlar eða konur á öðrum aldri. Ég kann þó alltaf betur og betur að meta kraftinn sem fylgir hugmyndinni um miðaldra konu. Hinar hefðbundnu miðaldra konur í bókum og ævintýrum eru völvur og nornir og lævísar stjúpur. Þær eru kannski ekki óspjallaðar söguhetjur í leit að hamingju til æviloka en þær hafa fundið vald sitt og nýta það til góðs eða ills. Ég held að konur á miðjum aldri eigi mikið inni.Nýjasta verk Soffíu Bjarnadóttur ber titilinn Áður en ég brjálast - játningar á miðjunni. Miðjan sem um er rætt er miður aldur því höfundur á 50 ára afmæli á árinu. Bókin er sjálfsævisaga með skapandi ívafi og flokkast líkast til best undir hinn vinsæla hatt sjálfssögunnar. Í bókinni veltir höfundur