Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Ef ég fæ ekki að nota símann hoppa ég fram af kletti“

Í síðustu viku fjölluðum við um nómófóbíu eða nomophobia, sem stendur fyrir no-mobile-phone-phobia: Hugtakið lýsir ótta, kvíða eða óþægindatilfinningu sem fylgir því að geta ekki notað snjallsímann til dæmis af því að hann hefur gleymst, ekki er leyfilegt að nota síma, rafhlaðan tæmist eða netsamband rofnar.Skúli Bragi Geirdal er sviðstjóri hjá SAFT, netöryggismiðstöð Íslands. Hann hefur meðal annars haldið utan um fræðslu fyrir foreldra og kennara um netnotkun barna- og unglinga.Hann segir það mikilvægt að eitthvað komi í staðinn, þegar lagt er af stað í þá vinnu að taka eitthvað út, sérstaklega þegar horft er á börn og ungmenni, þetta hafi alltaf verið hluti af þeirra veruleika. Þau fæðist inn í heim sem er annar en heimur foreldranna þegar þau fæddust.„Þegar á að taka eitthvað út býr þa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera