Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rektor háskóla segir af sér vegna þrýstings um að breyta inngildingaráætlunum

James Ryan, rektor Virginíuháskóla í Bandaríkjunum, sagði af sér í gær vegna þrýstings frá yfirvöldum um að breyta áætlunum um inngildingu og fjölbreytileika í háskólastarfinu. Ryan, sagðist ekki geta tekið þá ákvörðun að glíma við stjórnvöld, aðeins til að bjarga starfinu.Dómsmálaráðuneytið hafði krafist brottreksturs hans til að geta rannsakað óáreitt inngildingaraðgerðir skólans, samkvæmt fréttum The New York Times. Jafnframt hótaði ráðuneytið að frysta hundraða milljóna dala greiðslur til skólans.Ryan sagði það ekki einasta draumórakennt heldur sjálfselskt að streitast á móti og ógna þannig störfum og námsframvindu hundraða starfsmanna og stúdenta, sem reiða sig á styrki.Tilraunir Ryans til að gera námið fjölbreytilegra og tryggja aðgengi þeirra sem ekki eru komnir af háskólagengnu fól

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera