Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þrennt slasaðist á tónleikum Springsteen í Þýskalandi

Nils Lofgren, Bruce Springsteen og Steven Van Zandt á sviði Reale Arena í San Sebastian á Spáni.EPA-EFE / Javier EtxezarretaÞrennt slasaðist á tónleikum bandaríska rokkarans Bruce Springsteen í gærkvöld þegar nokkurra kílógramma málmstykki féll úr stórum skjá sem hangir í lofti tónleikahallar í þýsku borginni Gelsenkirchen, nærri Düsseldorf.Tvær konur og karlmaður voru flutt í skyndingu á sjúkrahús en ekki er vitað hversu alvarlega áverka þau hlutu. Svæðið, þar sem hluturinn lenti, var girt af og lögregla rannsakar hvað varð til þess að hann losnaði.Springsteen hélt áfram spilamennsku þrátt fyrir slysið, segja talsmenn lögreglunnar. Þetta voru þriðju og seinustu tónleikar rokkarans í Þýskalandi, sem hluti af Land of Hope and Dreams hljómleikaferð hans um Evrópu.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera