Lögun rauðra umferðarljósa á Akureyri er bæjarbúum mikið hjartans mál. Eftir tæpa tvo áratugi í umferð hefur Vegagerðin óskað eftir því að bærinn fjarlægi hjartalaga ljósin.Hjartalaga rauð umferðarljós eru fyrir margt löngu orðin hálfgert einkenni Akureyrarbæjar og íbúar því margir hverjir afar ósáttir við þau áform Vegagerðarinnar að láta taka þau niður af öryggisástæðum.Þó að engin slys hafi orðið sem hægt er að tengja beint við hjartaljósin segir Vegagerðin mikilvægt að bregðast við áður en svo verður.Fjöldi fólks hefur andmælt áformum Vegagerðarinnar um að fjarlægja hjartalaga umferðarljós á Akureyri og segja þau mikilvægt tákn um kærleik og einkenni bæjarins.Aðdáendur hjartaljósanna hafa margir lagt orð í belg. Þeirra á meðal er Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, sem sagði