Í uppfærðri skipulagstillögu Keldnalands í Reykjavík er gert ráð fyrir að grænum svæðum sé gefið aukið rými og að fótspor þéttbýlis minnki um tuttugu og átta hektara. Tólf þúsund manna byggð er áætluð í hverfinu sem á að byggja á vistvænum samgöngum og stuðla að kolefnishlutlausu borgarsamfélagi.Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar samþykkti í gær að opna skipulagsferli á hverfinu. Skipulagstillagan er á vinnslustigi og fer í skipulagsgátt með athugasemdafrest til 25. ágúst en áformað er að skipulagsvinnu ljúki í byrjun árs 2026. HORFT TIL ATHUGASEMDA VIÐ FYRRA SKIPULAG Verðlaunatillaga sænsku arkitektastofunar FOJAB og verklýsing aðalskipulagsbreytinga voru kynntar fyrir tveimur árum. Horft var til athugasemda sem bárust við verklýsinguna við gerð uppfærðrar tillögu skipulags.„