Mælingar gefa til kynna að jökulhlaupið úr Kötlu í fyrra gæti haf verið vegna lítils eldgoss undir jökli. Önnur skýring er að mikið vatn sé að safnast fyrir undir jöklinum, sem gæti endað með öðru flóði.Í lok júlí í fyrra varð skyndilega óvænt jökulhlaup úr Kötlu. Hlaupið olli miklum skemmdum, tætti í sundur hringveginn á löngum kafla, flæddi yfir tún og braut brúna yfir Skálm. Það tók flóðið 90 mínútur að ná niður á þjóðveginn.Eftir flóðið voru mælingar auknar við Mýrdalsjökul, en í fyrra náðist ekki að vara við því fyrr en flóðið var komið niður á veginn.Eyjólfur Magnússon, vísindamaður hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, segir að íssjármælingar á jöklinum hafi fyrst hafist eftir jökulhlaup í Múlakvísl árið 2011. „Við höfum keyrt yfir þessa katla og endurtekið eins nákvæmlega og hægt