Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ekki má heita Hó

Mannanafnanefnd hefur hafnað beiðni um millinafnið Hó. Í úrskurði nefndarinnar kemur fram að nefndin telji að nöfn sem leidd eru af upphrópunum, hó, hæ, hí, ha og jæja, geti orðið nafnberum til ama, sem er óheimilt samkvæmt lögum um mannanöfn.Enn fremur segir í úrskurðinum að þótt fullveðja einstaklingur kunni að kjósa sér nafn af einhverjum ástæðum sé ekki hægt að koma í veg fyrir að börn geti hlotið það:„Mikilvægir hagsmunir barna eru að þeim séu ekki gefin nöfn sem telja verður ósiðleg, niðrandi eða meiðandi sbr. greinargerð með frumvarpi til laga um mannanöfn.“Hins vegar voru samþykkt ellefu ný eiginnöfn í úrskurðum mannanafnanefndar 24. júní. STAR, BÍI OG ANÓRA Á MEÐAL NÝRRA NAFNA Á meðal nýsamþykktra nafna í úrskurðum mannanafnanefndar eru karlmannsnöfnin Link, Sesselíus, Baggio,

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera