Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra stendur við ummæli sín um Donald Trump Bandaríkjaforseta. Þau hittust á leiðtogafundi Atlantshafsbanalagsríkjanna í Haag í vikunni, tókust í hendur og Þorgerður lýsti honum sem heillandi.„Það er alveg augljóst að Trump var ekki að vinna þetta af tilviljun, hann er bara sterkur áhrifaríkur karakter, en er ég sammála öllu sem hann er að gera? Nei það vita held ég flestir sem hafa fylgst með minni pólitík,“Það sem skipti mestu máli sé að Ísland haldi góðu sambandi við Bandaríkin. Samstarf Íslands og Bandaríkjanna á sviði varnar- og öryggismála sé gott og mikilvægt.„Ísland mun halda áfram að tala fyrir okkar gildum um lýðræði, frelsi, frið og ekki síst í mannréttindamálum“Meðal þeirra sem gagnrýndu ummæli Þorgerðar var Svandís Svavarsdóttir, for