Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Áfram í gæsluvarðhaldi vegna gruns um fíkniefnaframleiðslu

Fimm manns, sem eru grunuð um skipulagða brotastarfsemi og framleiðslu fíkniefna á nokkrum stöðum á landinu hafa verið úrskurðuð í áframhaldandi vikulangt gæsluvarðhald.Áður hafði fólkið verið í gæsluvarðhaldi í viku.Um miðja síðustu viku tóku um 40 lögreglumenn og sérfræðingar, auk sérsveitar ríkislögreglustjóra, þátt í aðgerðum þar sem meðal annars var farið í húsleitir á nokkrum stöðum á Norðurlandi eystra, meðal annars á Raufarhöfn, og í Borgarnesi.Í tilkynningu á facebooksíðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra kemur fram að fjögur af þessum fimm hafi kært úrskurðinn til Landsréttar.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera