Félagið Eignasýn er nýtt fyrirtæki sem sérhæfir sig í að framleiða myndskeið fyrir fasteignaauglýsingar. Alexander Mar stofnandi fyrirtækisins segir markmiðið með stofnun þess ekki aðeins að bæta þjónustu heldur búa til nýja upplifun á fasteignamarkaðnum.