Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandaríkjaforseti krefst brottreksturs blaðamanna vegna umfjöllunar um árásir á Íran

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur síðustu daga brugðist ókvæða við umfjöllun fréttamiðla um skýrslu leyniþjónustu varnarmálaráðuneytisins DIA, sem bendir til að tjón á kjarnorkuinnviðum Írans af árásum Bandaríkjahers sé miklu minna en haldið hefur verið fram.Tafirnar á kjarnorkuáætluninni verði nokkrir mánuðir en ekki áratugir. Nú krefst Trump í færslu ritaðri í hástöfum á Truth Social brottreksturs þeirra „falsfréttamanna“ CNN og The New York Times sem fjallað hafa um málið.Harla óvenjulegt þykir að forseti lýðræðisríkis krefjist þess að blaðamenn verði látnir víkja fyrir skrif sín.David McGraw, lögmaður The New York Times, segir Trump hafa hótað blaðinu lögsókn og krafist afsökunarbeiðni. Hann segir hvorki standa til að biðjast forláts né að draga skrifin til baka. McGraw segir blaðið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera