Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa undanfarið unnið að umhverfismati vegna Sundabrautar. Umfangsmiklar jarðtæknirannsóknir á landi og sjó fóru fram í fyrra, auk kostnaðarmats og viðskiptaáætlunar. Að sögn Helgu Jónu Jónasdóttur verkefnisstjóra Sundabrautar er skýrslan um þrjú hundruð blaðsíður en auk þess eru sérfræðiskýrslur í viðaukum um þúsund blaðsíður. Í skýrslunni er farið yfir fjölda valkosta sem eru til skoðunar, hvort sem ákveðið verður að þvera Kleppsvík með brú eða göngum, en Sundabraut kemur til með að liggja frá Kjalarnesi yfir í Álfsnes (Gunnunes), þaðan í Geldinganes, frá Geldinganesi í Gufunes og þaðan yfir Kleppsvík að Sæbraut (Holtavegi).Skipulagsstofnun fer yfir skýrsluna og ef hún er í samræmi við matsáætlun og álit Skipulagsstofnunar og stenst kröfur laga og reglugerða