Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Allt veður er gott gönguveður, það þarf bara að velja leið við hæfi“

Nú er tími útivistar og gönguferða og landsmenn njóta fegurðar íslenskrar náttúru. Yfirleitt þarf ekki að leita langt yfir skammt til þess að finna skemmtilegar gönguleiðir. Bókin Gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu eftir Jónas Guðmundsson fjallar um 30 fjölbreyttar gönguleiðir í Reykjavík og nágrenni. Höfundurinn er þaulreyndur gönguleiðsögumaður, landvörður og ferðamálafræðingur. Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson ræddu við Jónas í Mannlega þættinum á Rás 1.Þó að sólin láti ekki mikið fyrir sér fara hefur verið nokkuð milt og gott veður. Jónas tekur fram að allt veður sé gott gönguveður, það þurfi bara að velja leið við hæfi. Í bókinni er tilgreindur upphafsstaður fyrir hverja gönguleið ásamt áætlaðri göngulengd, áhugaverðum stöðum á leiðinni, myndum og korti og má hæglega hafa hana með

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera