Staða Sjúkratrygginga við kaup á heilbrigðisþjónustu er ekki eins sterk og stefnt var að.Þetta segir í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar, sem var kynnt fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fyrr í dag.Þar segir að stofnunin nái ekki að fylgja lögbundnu hlutverki sínu nema að hluta til. Hún hafi hvorki náð að byggja upp þá þekkingu né mannauð sem þarf til að gera nauðsynlegar þarfa- og kostnaðargreiningar vegna samninga um kaup á heilbrigðisþjónustu.Samningsstaða Sjúkratrygginga sé veik og viðsemjendur séu oft í yfirburðastöðu.Ríkisendurskoðun gerir margvíslegar tillögur til úrbóta. Þar á meðal er að styrkja stöðu Sjúkratrygginga í samningsgerð og að koma þurfi upp skýrum innkaupaferlum. Þá þurfi að efla eftirlit með kostnaði og við samninga og tryggja eftirlit með samni