Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Ég hélt að þetta væri símaat“

Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona, leikstjóri og höfundur, er á meðal þeirra sem fengu fálkaorðu á þjóðhátíðardaginn. Henni var Unnur sæmd fyrir framlag til leiklistar og samfélagsmála. Hún kíkti í Morgunkaffið á Rás 2 og sagði Söndru Barilli og Jóhanni Alfreð frá því hvernig hún fékk fréttirnar óvænt, skömmu fyrir athöfnina. „Ég var í sundi með börnunum í Mosó og fæ bara sms frá forsetaembættinu,“ rifjar hún upp og hlær. Í skilaboðunum var hún spurð hvort hún hefði fimm mínútur og gæti tekið smá spjall. „Maður panikar alveg: Gerði ég eitthvað af mér, guð minn góður.“ STÓÐ UPP ÚR AÐ TAKA KRAKKANA MEÐ TIL BESSASTAÐA Unnur trúði varla eigin eyrum þegar erindið var borið upp. „Ég hélt að þetta væri símaat,“ segir hún. En svo var auðvitað alls ekki og Unnur Ösp og Björn Thors eiginmaðurinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera