Sean hvarf sporlaust í júní 2018. Þá átti hann bókað flug ásamt konunni frá Keflavík til Malaga á Spáni. Lögreglan á Suðurlandi fór með rannsókn á hvarfi hans en veit ekki hvað varð um hann. Óvíst er hvort hann fór til Spánar.Konan er mikilvægasti upplýsingagjafi lögreglunnar um hvarf Sean. Hann hafði búið á Íslandi síðan á níunda áratugnum og leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands í rúm tíu ár. VARÐ ÁSTFANGINN AF KONUNNI Ein af mörgum kenningum sem lögreglan leitaðist við að sannreyna var hvort nokkuð saknæmt hefði komið fyrir Sean. Vinir og ættingjar hans höfðu margir á orði við lögreglu að samband hans við hina umræddu konu hafi verið sérkennilegt.Þau höfðu þekkst í langan tíma. Sean var sagður yfir sig ástfanginn af konunni en ástin var ekki gagnkvæm. Þau áttu því í einhvers konar vi