Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Allir KFC-staðir í Danmörku fengu falleinkunn

Það eru ellefu Kentucky Fried Chicken veitingastaðir í Danmörku. Við úttekt Matvælastofnunar Danmerkur þann 2. júní kom í ljós að enginn þeirra fékk góða einkunn fyrir hreinlæti.Stofnunin notar broskarla við einkunnagjöf. Best er að fá brosandi karl, það þýðir engar athugasemdir. Súr karl - með beint strik fyrir munn - þýðir viðvörun, bann eða dagsektir. Verst er að fá fýlukarl, það getur þýtt sektir, lögregluskýrsla, sóttkví eða jafnvel að leyfi verði afturkallað.Enginn staður fékk broskarl, sjö fengu súran karl og fjórir fýlukarl. Einn staður, í verslunarmiðstöðinni Field´s í Kaupmannahöfn, fékk broskarl eftir að stofnunin gerði aðra úttekt daginn eftir.Í skýrslunni kemur meðal annars fram að á KFC í Óðinsvéum hafi verið merki um myglu, ryk og köngulóarvefi. Þá var geymslu á kjúklingakjö

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera