Löngu fyrir tilkomu snjallsíma kynntust tveir ungir breikarar í félagsmiðstöð Þróttheima, nánar tiltekið árið 1985. Þeir Einar Snorri og Eiður Snorri eru ekki bræður, þeir þekktust ekki fyrir þennan fund, en föttuðu að eigin sögn strax að þeir ættu það sameiginlegt að geta ekki hugsað sér að gera hlutina eins og aðrir.„Við tókum strax eftir því að við gætum lesið huga hvors annars en enn benti ekkert til þess að við myndum einhvern tímann vinna með Tom Cruise,“ segir Einar Snorri glettinn í samtali við Menningarvefinn.Þeir félagar, sem kalla sig Snorri Bros, voru að setja af stað herferð á Kickstarter þar sem þeir bjóða áhugasömum að festa kaup á búnaði svo þeir geti leikið eftir hið fræga Snorricam. „Snorricam er líkamsbundinn myndavélabúnaður sem heldur myndavélinni föstu við líkama þess