Páll Steingrímsson, fyrrverandi skipstjóri hjá Samherja, hefur höfðað mál gegn Ríkisútvarpinu ohf. fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og krefst 4 milljóna króna í miskabætur. Málið tengist meintu broti gegn friðhelgi einkalífs hans, þar sem starfsmenn RÚV eiga að hafa afritað síma hans og komið gögnum úr honum í hendur annarra fjölmiðla.