Þingmenn stjórnarandstöðunnar fóru hörðum orðum um forsætisráðherra á þinginu í morgun og gagnrýndu ummæli sem hún lét falla í Kastljósi í gær. Þar voru fulltrúar minnihlutans sakaðir um fjalla um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar í „falsfréttastíl.“ Fara sumir þingmenn fram á að ráðherrann dragi ummælin til baka og biðjist afsökunar.