Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Leiðtogafundur NATO í skugga átaka í Mið-Austurlöndum

Leiðtogar NATO-ríkjanna koma til Haag, höfuðborgar Hollands í dag, á sama tíma og ótryggt vopnahlé hefur verið sett í átökum Ísraels og Íran - eftir árásir Bandaríkjamanna og gagnárás Írans í gær.Meginmarkmið leiðtogafundarins er að samþykkja viðamikla áætlun um að auka útgjöld aðildarríkjanna til varnar- og öryggismála; sú áætlun nýtur stuðnings langflestra NATO-ríkja, þótt Spánverjar hafi náð að knýja fram svigrúm til að draga þessa aukningu á langinn.Áætlunin kemur ekki til af góðu; öryggisumhverfið í Evrópu hefur tekið breytingum undanfarin ár, eftir allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu vorið 2022; Bandaríkjastjórn, með Donald Trump forseta í fararbroddi, gerir kröfur um aukin framlög annarra aðildarríkja og það liggur fyrir að Bandaríkjamenn vilja draga úr herstyrk sínum í Evrópu og beina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera