Tommamótið í Vestmannaeyjum, síðar Shellmótið og nú Orkumótið, var upphaflega fótboltamót fyrir níu og tíu ára stráka í 6. flokki, en er nú fyrir eldri árgang flokksins. Það var fyrst haldið sumarið 1984, Freyr Sverrisson mætti þangað með sinn flokk úr Keflavík sumarið 1985 og fer í næstu viku á sitt 32. mót 40 árum síðar.