Sjávarútvegsfyrirtæki meta stöðu og horfur í efnahagslífinu verst, samkvæmt nýrri könnun Samtaka atvinnulífsins og Seðlabankans. Tvö af hverjum fimm fyrirtækjum búast við að fækka starfsfólki. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir þetta alvarlegt því sjávarútvegurinn greiði mest allra atvinnugreina í laun.Samtök atvinnulífsins og Seðlabankinn kanna stöðu og framtíðarhorfur stærstu fyrirtækja landsins reglulega með aðstoð Gallup. Í nýjustu könnuninni, sem var gerð í maí og júní, svöruðu 184 fyrirtæki. 43% þeirra töldu aðstæður í efnahagslífinu frekar góðar, en 15 telja stöðu og horfur frekar eða mjög slæmar. Sjávarútvegurinn sker sig úr og aðeins 22% fyrirtækja telja aðstæður góðar en helmingur telur þær frekar eða mjög slæmar. Horft sex mánuði fram í tímann telur 61% sjávarútvegsfy