Þorskaflinn það sem af er strandveiðum er tæplega 6.570 tonn sem er um 560 tonnum minna en á sama tíma í fyrra. Bátunum hefur þó fjölgað, 781 bátur er með virkt strandveiðileyfi sem er fjölgun um 42 báta. MEIRI RÓ YFIR SÓKNINNI ÞEGAR HÆGT ER AÐ VEIÐA Í 48 DAGA „Það segir okkur það að þrátt fyrir að bátunum hafi fjölgað þá hafa menn aðeins breytt um róðrarlag. Þeir vita að þeir fá að veiða út ágúst, eða þessa 48 daga og það er meiri ró yfir sókninni,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Þá sé minni veiði á sumum veiðisvæðum og bræludagar inn á milli. ÓEÐLILEGT AÐ MIÐA VIÐ HÁMARKS AFKASTAGETU FLOTANS En þetta sé í samræmi við það sem Landssambandið hafi haldið fram um þörfina fyrir veiðiheimildir til strandveiða. Það sé óeðlilegt að miða við hámarks afkast