Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stunguárás í Reykjanesbæ rannsökuð sem tilraun til manndráps

Karlmaður á þrítugsaldri er í gæsluvarðhaldi, grunaður um alvarlega stunguárás í Reykjanesbæ um síðustu helgi.Lögregla fékk tilkynningu um árásina upp úr klukkan 22 á föstudagskvöld. Leit að meintum árásarmanni hófst strax og hann fannst á höfuðborgarsvæðinu skömmu eftir miðnætti.Karlmaður á sjötugsaldri var fluttur á sjúkrahús eftir árásina. Ástand hans var mjög alvarlegt en hann er kominn úr lífshættu að sögn Nönnu Lindar Stefánsdóttur, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum. Árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps.Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði manninn í vikulangt gæsluvarðhald, sem rennur út á föstudag. Nanna Lind segir rannsókn miða vel. Ákvörðun hvort farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald verður tekin síðar í vikunni, eftir því sem

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera