Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Samstarfið sem þingmenn óttast að geti grafið undan frama þeirra

Alþjóðastarf þingmanna getur skilað betri löggjöf og stefnumótun, segir stjórnmálafræðingur. Þingmenn óttast þó að slíkt starf geti skaðað stjórnmálaferil þeirra.Þátttaka þingmanna í stjórnmálasamstarfi á alþjóðavettvangi er mikilvæg en vanmetin, segja viðmælendur rannsakenda við Háskóla Íslands. Þeir koma úr röðum núverandi og fyrrverandi þingmanna og embættismanna. Fjallað er um rannsóknina í nýbirtri grein Vilborgar Ásu Guðjónsdóttur alþjóðastjórnmálafræðings og Silju Báru Ómarsdóttur, prófessors í stjórnmálafræði, í nýjasta hefti Tímarits um stjórnmál og stjórnsýslu.Viðmælendurnir segja að enn sé litið á fundi alþjóðlegra þingmannasamtaka sem fyllerís- og fríferðir sem þurfi að takmarka. Þeir segja ferðirnar hins vegar geta nýst bæði til að afla þekkingar og til að veita stjórnvöldum h

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera