Spánverjar segjast hafa komist að samkomulagi við Atlantshafsbandalagið um undanþágu frá kröfu um að Spánn verji jafngildi fimm prósenta af vergri landsframleiðslu sinni til varnarmála. Leiðtogar aðildarríkja bandalagsins funda í Haag í dag.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þrýst á önnur aðildarríki NATO að ná fimm prósenta útgjaldaþröskuldi til varnarmála. Aðildarríkin höfðu reynt að koma til móts við hann með samningi um að hvert ríki fyrir sig verji 3,5 prósentum til að fullnægja hernaðarlegum grundvallarþörfum og 1,5 prósentum til annarra varnarmála.Pedro Sánchez forsætisráðherra Spánar var síðasti NATO-leiðtoginn sem ekki vildi ganga að þessu samkomulagi og sagði fimm prósenta þröskuldinn ósanngjarnan.Eftir samningaviðræður Sánchez og Marks Rutte framkvæmdastjóra NATO tilkynnti ban