Brúin yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi.RÚV / Ísak ÓlafssonUnnið verður að viðgerðum á brúnni yfir Jökulsárlón á Breiðamerkursandi dagana 23. júní til 25. júní. Brúin sem um ræðir er rétt við Jökulsárlón.Á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is, er athygli vakin á því að lokanir og umferðartafir verða með reglulegu millibili milli klukkan 20 á kvöldin og 8 á morgnana þá daga sem viðgerðir standa yfir.Vegagerðin biður vegfarendur að aka varlega og virða fyrirmæli og merkingar.