Tónlistin er allsráðandi í spilara RÚV þetta sumarið, allt frá heimildarmyndum yfir í tónleikamyndir og leiknar ævisögur.Menningarvefurinn hefur tekið saman lista yfir nokkrar af þeim heimildarmyndum sem er að finna en dagskrárflokkinn má finna hér. Sjónvarpsdagskráin í sumar er síðan sneisafull af spennandi efni og má þar nefna þátt um Ellu Fitzgerald og John og Yoko Ono: Above the Universe sem verða sýndar á RÚV í júní og júlí. REFRAMED: MARILYN MONROE Fyrir tveimur vikum hófst fjögurra þátta heimildaþáttaröð um hina rómuðu Hollywood-stjörnu Marilyn Monroe sem var þekkt fyrir bæði leik og söng. Þættirnir fjalla um ævi hennar, störf og arfleifð.Tónlistarbransinn er alveg sérstakur heimur og fólkið sem lifir og hrærist í honum lifir oft stórbrotnu lífi. Menningarvefur RÚV hefur tekið sa