Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stórkostleg lífsreynsla að hafa unnið við stærsta sjónvarpsþátt í heimi

„Mér líður bara mjög vel með það að vera formlega hættur,“ segir Felix Bergsson sem sat sinn síðasta fund hjá stýrihóp Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, á mánudaginn. Hann ræddi við Síðdegisútvarpið á Rás 2 um þessi kaflaskil í sínu lífi og rifjaði upp gamla tíma.„Ég er alltaf að hætta en nú er þetta svona endanlegt.“Þau hafi verið að gera upp keppnina í ár sem haldin var í Basel en daginn eftir hafi hópurinn hafið undirbúning fyrir þá næstu. „Ég steig frá áður en sú vinna hófst.“Felix hefur unnið við Eurovision í 14 ár, eða allt frá því hann fór fyrst sem fjölmiðlafulltrúi með Vinum Sjonna árið 2011. Síðan hefur hann unnið sem fararstjóri íslenska teymisins og síðustu fjögur ár sat hann í stýrihóp keppninnar. FANNST KOMIÐ NÓG Þegar Felix er spurður hvers vegna hann ha

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera