Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rússar skjóta yfir 300 drónum á Úkraínu

Rússar gerðu eina stærstu árás sem þeir hafa gert á Kyiv, höfuðborg Úkraínu í morgun. Alls sendu þeir 315 dróna á Úkraínu, að sögn Volodymyrs Zelensky forseta Úkraínu. Tveir fórust í Odesa.Zelensky sagði að fyrir utan Kyiv og Odesa hafi drónar Rússa einnig verið sendir til héraðanna Dnipro og Chernihiv. Þá hafi sjö eldflaugum verið skotið að Úkraínu og tvær þeirra hafi verið framleiddar í Norður-Kóreu.Oleg Kiper héraðsstjóri Odesa upplýsti að tveir hefðu verið drepnir þar. Miklar skemmdir væru á borgaralegum mannvirkjum. Ráðist hafi verið á íbúðarbyggingu, fæðingardeild og bráðamóttöku, en fæðingardeildin hafi verið rýmd áður en drónarnir hæfðu hana. Í Kyiv særðust fjórir en drónarnir hæfðu minnst sjö hverfi í borginni, að sögn borgarstjórans þar.Úkraínumenn sendu einnig dróna yfir til Rús

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera