Nýi Landspítalinn er óðum að taka á sig mynd. Stærsta byggingin og sú sem mun gegna lykilhlutverki er meðferðarkjarninn, hið eiginlega sjúkrahús, mætti kannski segja. Sex hæða hús sem deilt er upp í fimm hluta.Verið er að innrétta legudeildirnar þar sem bara eru einbýli með sér snyrtingu og er áætlað að því ljúki í árslok 2027. Í miðju rýminu er glerbúr sem er ætlað að veita dagsbirtu inn á hæðirnar og einnig er opið fyrir birtu á milli byggingareininga alveg niður á neðri hæð kjallarans, en mikið er lagt upp úr að það sé bjart í húsinu.Spítalinn er risaframkvæmd, vel á annað hundruð þúsund fermetrar. Á fjórða hundrað manns eru við vinnu á svæðinu núna, en þegar innivinnan hefst fyrir alvöru á meginhæðunum verða um og yfir þúsund manns að störfum.