Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Halda áfram leit að göngumanni á Esjunni

Ekkert hefur spurst til göngumanns á Esjunni, sem hefur verið leitað að frá því um klukkan níu í gærkvöld. Leitað var langt fram á nótt.Hinrik Wöhler, staðgengill upplýsingafulltrúa hjá Landsbjörg, segir í samtali við fréttastofu að leitinni verði haldið áfram nú í morgunsárið. Björgunarsveitir af öllu höfuðborgarsvæðinu taka þátt í leitinni.Ekki fást neinar upplýsingar um manninn né hvað varð til þess að leit var hafin, en Hinrik segir að maðurinn hafi verið það lengi á göngu einn á ferð að grunur hafi vaknað um að hann væri týndur.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera