Búist má við fremur björtu og mildu veðri í dag.Samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands verður austlæg eða breytileg átt, 3 til 8 metrar á sekúndu. Bjart með köflum en líkur eru á skúrum síðdegis, einkum inn til landsins. Hiti 6 til 14 stig og hlýjast á Vesturlandi.Á morgun er von á vaxandi austanátt, 5-15 metrar á sekúndu seinni partinn og hvassast syðst á landinu. Þá fer að rigna, fyrst um landið sunnanvert, en þurrt að kalla fyrir norðan. Hiti 6 til 15 stig og hlýjast norðantil.