Árásir Rússa á Kænugarð þær mestu frá upphafi stríðsins
Volodimír Selenski Úkraínuforseti hvetur Bandaríkin og Evrópu til að bregðast við nýjum árásum Rússa sem skutu meira en 300 drónum og sjö eldflaugum á borgir í Úkraínu í nótt, þar á meðal höfuðborgina Kænugarð.