Greta Thunberg ásamt öðrum aðgerðasinnum á Ítalíu áður en lagt var af stað til Gaza.AP / Salvatore CavalliGreta Thunberg og aðrir aðgerðasinnar sem voru um borð í skipinu Madleen hafa verið flutt á Ben Gurion-flugvöllinn í Tel Avív. Ísraelar stöðvuðu skipið, sem var á leið til Gazastrandarinnar með hjálpargögn, á alþjóðlegu hafsvæði í gær og handtóku áhöfnina. „Þau sem neita að undirrita brottvísunarskjölin og fara frá Ísrael verða færð fyrir dómsvald,“ skrifaði ísraelska utanríkisráðuneytið á samfélagsmiðlum. Ráðuneytið segir ekkert því til fyrirstöðu að fljúga þeim heim strax í dag.Félagasamtökin Adalah, sem veita minnihlutahópi ísraelskra Araba lögfræðiþjónustu, segja skipverjana hafa nálgast þau um aðstoð.