Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Gefur í skyn að samsæri sé að baki tilræðinu gegn Uribe

Gustavo Petro forseti Kólumbíu velti í gær vöngum yfir morðtilræðinu sem stjórnarandstöðuleiðtoganum Miguel Uribe var sýnt á sunnudaginn. Uribe er enn í lífshættulegu ástandi á sjúkrahúsi eftir að hann var skotinn tveimur skotum í höfuðið og einu í hnéð.Petro fór mikinn á samfélagsmiðlum vegna tilræðisins og sakaði andstæðinga sína um að hafa gert sér mat úr því í pólitískum tilgangi. Þá furðaði Petro sig á því að lífvörðum Uribe hefði „undarlega“ verið fækkað úr sjö í þrjá daginn sem árásin var gerð. Með þessu virtist forsetinn gefa í skyn að samsæri lægi að baki tilræðinu gegn Uribe.Petro hélt því jafnframt fram að „myrkraöfl“ og nýnasistar hefðu sett fé til höfuðs honum. Þau hefðu jafnvel farið þess á mála við ísraelsku leyniþjónustuna Mossad að láta ræna honum. Andstæðingar Petros hafa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera