Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ætla ekki að enda Úkraínustríðið fyrr en NATO hverfur frá Eystrasaltsríkjunum

Stríðinu í Úkraínu mun ekki ljúka fyrr en Atlantshafsbandalagið dregur alla hermenn sína frá Eystrasaltsríkjunum. Þetta sagði Sergej Rjabkov aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands í viðtali við rússneska ríkisfréttamiðilinn Tass á mánudaginn.Eystrasaltsríkin þrjú, Eistland, Lettland og Litáen, hafa verið meðlimir í Atlantshafsbandalaginu frá árinu 2004. Rússar hafa ítrekað bent á inngöngu fyrrum ríkja austurblokkarinnar í NATO sem undirliggjandi ástæðu stríðsins í Úkraínu, enda ógni bandalagið þjóðarhagsmunum Rússlands. Bandalagið hefur aukið viðveru sína í Eystrasaltinu síðan innrásin í Úkraínu hófst árið 2022. Tvö ríki til viðbótar, Svíþjóð og Finnland, gengu í NATO eftir að innrásin byrjaði.„Í ljósi eðlis og uppruna kreppuástandsins í Úkraínu, sem hleypt var af stað af fyrri stjórnum Banda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera